Pólstjarnan

Pólstjarnan is a North Atlantic based sailing yacht with home base in Fáskrúðsfjörður, Iceland.

Vessel Name: Pólstjarnan
Vessel Make/Model: Motiva 43
Hailing Port: Fáskrúðsfjörður
Crew: Guðni Ársælsson, Jóhanna Þorsteinsdóttir, Þorsteinn Björnsson, Sóley Karlsdóttir
Social:
03 August 2019 | Faxaflói
03 August 2019 | Næstum Faxaflói
03 August 2019 | 64 19'N:26 46'W, 128 nm frá Reyjavík
02 August 2019 | 64 26'N:29 34'W, 200 nm frá Íslandi
02 August 2019 | 64 44'N:32 30'W, 125 nm frá Grænlandi
01 August 2019 | 65 01'N:35 12'W, 65.01 N, 35.12W
28 July 2019 | Tasiilaq
25 July 2019 | 65 55'N:36 53'W, 65.55 N, 36.53W
24 July 2019 | 66 11'N:35 33'W, Storö
23 July 2019 | 66 21'N:35 08'W, 66.21N / 35.08W
22 July 2019 | 66 40'N:34 27'W, 66.40/34.27W
21 July 2019 | 68 10'N:31 44'W, Kangerlussuaq
20 July 2019 | 68 10'N:31 44'W, Kangerlussuaq
20 July 2019 | 68 09'N:31 44'W, Kangerlussuaq
19 July 2019 | 67 48'N:30 17'W, Við Grænlandsströnd
19 July 2019 | 67 32'N:29 08'W, 75 nm frá strönd Grænlands
19 July 2019 | 67 14'N:27 53'W, 75 nm frá strönd Grænlands
19 July 2019 | 676 02'N:26 3'W, Miðlína Íslands og Grænlands
18 July 2019 | Halamið
18 July 2019 | ÍSAFJÖRÐUR
Recent Blog Posts
03 August 2019 | Faxaflói

Erum að detta í land

Þá er þessum túr að ljúka og við komin á þekktar slóðir hérna inn á Faxaflóa, eigum eftir tvo tíma inn til Hafnarfjarðar og verðum þar 03:15 í nótt. Eigum þá eftir að klára tollafgreiðslu. Búinn að vera alveg frábær ferð í alla staði og eigum mikla vinnu fyrir höndum að taka saman ferðasögu og myndir eftir túrinn. Erum með einhver 260 GB af myndum og video úr ferðinni sem á eftir að taka tíma að fara yfir :-)

03 August 2019 | Næstum Faxaflói

Engin landsýn

Erum núna komin í rólegt netsamband og ættum tæknilega að hafa landsýn af Snæfellsjökli, en hann er samt eitthvað að fela sig í skýjum enn blessaður. Verðum í Hafnarfirði c.a 4 í nótt nema við fáum einhvern smá vind til að leika okkur í, en það gæti hægt eitthvað á okkur þar sem við búumst ekki við neitt og miklum vindi. Væri samt gott að hvíla sig smá á glamrinu í fílupúkanum honum mr Ford.

03 August 2019 | 64 19'N:26 46'W, 128 nm frá Reyjavík

Staðan að morgni Laugardags

Vorum ekki fyrr búinn að sleppa bloggpósti gærkvöldsins þegar mr Ford tók upp á því að vera með sínar kenjar. Orsökin sem fyrr sú að honum hafði tekist að draga loft inn á olíuverkið. Millitíminn á því að koma honum af stað aftur er samt orðin mjög góður og þetta tafði okkur ekki mikið. Þetta gerðist tvisvar með 4 tíma millibili, en í seinna skiptið var aðeins fært upp á lögninni frá olíutaknum og við vonum að þar hafi verið að finna frumorsökina, en amk er mr Ford búinn að vera glaður í 5 klukkutíma þegar þetta er skrifað. Hérna er mjög rólegur vindur og nær slettur sjór, en nokkur kvika úr SA. Það er því enn um sinn útlit fyrir að við þurfum að treysta á mr.Ford til þess að færa okkur nær Íslandi. Smá von um léttan byr seinnipartinn, en nær líklega ekki nógu sunnarlega til þess að nýtast okkur að gagni. Annars allt í góðu standi um borð og allir kátir. Gerum ráð fyrir því að verða í Hafnarfirði um klukkan 04:00 aðfararnótt sunnudags.

Hafísdagurinn mikli

23 July 2019 | 66 21'N:35 08'W, 66.21N / 35.08W
Þorsteinn
Dagurinn í dag bauð uppá mjög fjölbreyttar aðstæður. Við vöknuðum í þoku í morgun sem breyttist í heiðskýrt veður og logn sem var nýtt til myndatöku þar sem þurfti að haka við á listanum að eiga mynd af Pólstjörnunni með borgarísjaka í bakgrunni. Lognið breyttist svo í brælu þegar út úr firðinum var komið, og þá kom breytt í bakið á knoll og tott að hafa ekki nennt að ganga almennilega frá gúmmibátnum, sem þeir höfðu þó sammælst um að gera nema bara í blíðasta og besta. Þegar í bræluna var komið var fátt að gera nema að búa við að hafa bátinn hangandi lauslega í gálgunum og troða á milli fenderum þar sem því var við komið. Fyrir utan fjörðin var 13-15 metra vindur og ölduhæð 2 metrar sem var ekki vandamál fyrir Pólstjörnuna, en gúmmibáturinn fékk að súpa á því nokkrum sinnum. Þéttur ís hafði safnast sunnan við fjarðarmynnið og við enduðum á því að sigla einhverjar 13 mílur meðfram ísnum í töluverðum veltingi. Þegar fór að greiðast úr ísflækjunni var stefnan tekinn inn í ísinn, og þegar þangað var komið dempaðist allt sjólag og við tók ratleikur á milli jaka. Íshröngið þéttist svo eftir því sem sunnar dró og við þurftum að finna leið út, en eftir að við losnuðum úr ísnum, þá fengum við þetta fína lens það sem eftir var ferðar, en áfangastaðurinn var áður ákveðin miðað við þær fáu ársprænur sem eina kortið okkar sýndi og þóttu veiðilegar. Þegar til kom voru vötn og lækir að mestu jökulís og skriðjöklar, en fundum samt einn læk þar sem búið er að leggja út net og við erum vongóð um að nú verði hugnurvofunni bægt frá í langan tíma. Líðum þó engan skort, og frú Sóley bauð uppá steikt lambalæri og brúnaðar kartöflur. Eigum líka einhverjar grillsteikur, og hreidýrasteikur, og 5 kg af þorskhnökkum og svo auðvitað neyðarmatinn ef þetta gengur ekki núna. Ætluðum okkur að vera á algerlega ókönnuðu landi í kvöld, en þau plön klikkuðu heldur betur, því rétt sem við vorum að kasta akkerum sáum við heilan gönguhóp sem hafði slegið upp tjöldum í fjörunni. Hvergi friður......
Comments

About & Links